Lýsing
Nemendur svara eftirfarandi 10 spurningum skriflega á þeim tungumálum sem hentar þeim, auk íslensku.
Nemendur ræða síðan svörin í hópum á íslensku, og/eða öðrum tungumálum sem þau eiga sameiginleg og deila síðan hugleiðingum sínum með öllum í bekknum.
Spurningar
- Á hvaða tungumáli/tungumálum hugsar þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum lest þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum skrifar þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum telur þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum glósar þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum blótar þú?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum lærir þú best?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum tjáir þú best tilfinningar þínar?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum dreymir þig?
- Á hvaða tungumáli/tungumálum talar þú við fjölskyldu þína?