Tungumálaregnbogi

Lýsing

Skiptið nemendum í hópa. Takið saman orð eða biðjið nemendur að velja þau. Orðin geta lýst mikilvægum gildum skólans eins og vinátta, virðing og jafnrétti og nemendur þýða þau yfir á tungumál sem þau tengjast.

Nemendur skrifa orðin á öllum tungumálum sínum á spjöld í mismunandi litum og hengja upp á vegg.

Orðin eiga sinn eigin lit og mynda hvert og eitt einn boga regnbogans á fjölmörgum tungumálum heimsins eins og sést á myndinni.
Hér má sjá dæmi um útfærslur á tungumálaregnbogum.

Efni og áhöld

  • Spjöld/pappír í mismunandi litum
  • Stór pappírsörk fyrir bakgrunn (má sleppa)
  • Svartir tússpennar

Verkefnablöð